660 1794
olipall@bseignir.is
8 HÆÐA SKRIFSTOFYBYGGING VIÐ
URÐARHVARF 16
Urðarhvarf 16 er nýjasta viðbótin í glæsilegt Hvarfahverfi. Einstakt útsýni er yfir höfuðborgarsvæðið og fjallahring Suðvesturhornsins. Húsið er í byggingu og því gefst væntanlegum leigutökum/kaupendum að taka þátt í hönnunn innra skipulags frá upphafi. Með þessu fá leigutakar/kaupendur að hanna vinnurými til að svara þörfum fyrirtækja og starfsfólks. Staðsetningin er gríðarlega hentug fyrir starfsfólk sem og viðskiptavini m.t.t. samgöngumöguleika, ferðatíma og bílastæða. Borgarlínan er á áætlun við Breiðholtsbrautina neðan við Urðarhvarf. Ný mislæg gatnamót inn í Hvörfin er á framkvæmdaáætlun Vegagerðarinnar, Kópavogs og Reykjavíkurborgar.
STAÐSETNING
Af svölum 8. hæðar sést hvernig Elliðaáin hlykkjast gegnum Víðidalinn í átt til sjávar. Þar í bakgrunni blasir Esjan við í öllu sínu veldi ásamt Úlfarsfelli.
Þegar horft er til suðurs speglast himinninn í Elliðavatninu og þá teygir Heiðmörkin sig þaðan og upp til Bláfjalla.
Nýr Arnarnesvegur mun gjörbreyta aðkomu að Hvarfahverfinu eins og sjá má hér
Stafrænar lausnir frá